Nánari upplýsingar
Hólf og skipulag
Aktiv er með rúmgóðu aðalhólfi fyrir æfingaföt, handklæði og annan búnað. Sérstakt skóhólf heldur skóm aðskildum frá öðrum eignum og hólf fyrir blaut föt hentar vel undir sundföt eða sveitt æfingaföt. Einnig eru tvö hliðarhólf fyrir vatnsbrúsa sem og 3 minni hólf framan á, aftan á og inní bakpokanum þar sem hægt er að geyma síma, raftæki eða aðra minni hluti.
Stærð, rúmmál og þyngd
Stærð: 45 × 34 × 19 cm (Hæð x breidd x dýpt)
Lítrar: 29L
Þyngd án farangurs: 750g
Efni og hönnun
Pokinn er úr slitsterku nylon-efni sem er létt, sveigjanlegt og auðvelt að þrífa. Hann er hannaður til að þola endurtekna notkun og má brjóta saman þegar hann er ekki í notkun.
Þrif og umhirða
Þurrkaðu óhreinindi af bakpokanum með mjúkum, rökum klút og leyfðu honum að þorna. Gott er að tæma og lofta úr skóhólfinu og blautfatahólfinu eftir notkun, sérstaklega þegar blaut eða sveitt föt hafa verið geymd í þeim.
Allt fyrir æfinguna. Á sínum stað.
Sérstakt skóhólf og hólf fyrir blaut föt.
Einn bakpoki fyrir ræktina, sundið og allt þar á milli.